Heilsulausnir jobs and careers
Iceland
About Heilsulausnir
Heilsulausnir er fyrirtæki í forvörnum. Stofnað og rekið af tveimur hjúkrunarfræðingum, Stefaníu Ösp Guðmundsdóttur og Andreu Ýr Jónsdóttur. Starfsemi Heilsulausna er tvíþætt: 1: Forvarnarfræðsla fyrir börn og unglinga. Heilsulausnir bjóða upp á fjölbreytt fræðsluefni eins og Vímuefnafræðsluna VELDU, kynheilbrigði, svefn, skjánotkun, samfélagsmiðlar, næring, nikótín og fleira. Allt efni er samið og flutt af hjúkrunarfræðingum þar sem notast er við nýlegar og gagnreyndar heimildir. Lögð er áhersla á notkun áhugahvetjandi samtalstækni í stað þess að vera með boð og bönn. Í öllu fræðsluefni Heilsulausna er uppbygging sjálfsmyndar rauði þráðurinn þar sem kenndar eru aðferðir til að styrkja sjálfsmyndina og fjallað um ágóða þess og mikilvægi að vera með jákvæðra og sterkra sjálfsmynd. 2: Fyrirtækjaþjónusta: Heilsulausnir eru stöðugt að bæta þjónustu við fyrirtæki og hópa þar sem við bjóðum upp á fjölbreyttar heilsufarsmælingar, einstaklingsmiðaða heilsufarsráðgjöf, bólusetningar og ýmis fræðsluerindi. Boðið er upp á skýrslu þar sem fyrirtæki sjá töluleg ópersónugreinanleg gögn um niðurstöður heilsufarsmælinga starfsfólks ásamt áliti hjúkrunarfræðinga. Heilsulausnir hófu starfssemi sína árið 2019 og hafa farið víðsvegar um landið í skóla og fyrirtæki. Heilsulausnir eru einnig í samstarfi við félagasamtök á borð við Krabbameinsfélag Höfuðborgarsvæðisins þar sem unnið er saman að ýmsum verkefnum. Heilsulausnir taka virkan þátt í forvarnarsamfélagi Íslands og halda reglulega erindi á málþingum og ráðstefnum. Heilsulausnir hafa fengið styrki frá t.d. Lýðheilsusjóð.
- Employees
- 1 to 10
- Headquarters
- Iceland
Leadership
The top of Heilsulausnir's org chart, with how many people report into each leader.
Andrea Ýr Jónsdóttir
Business Owner
Jobs at Heilsulausnir
No open positions right now. Explore more companies on TheJobsMap.