About Rekstrarvörur
RV var stofnað 18. maí 1982 og hefur á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun byggt upp traust samband við góða viðskiptavini og jafnan litið á viðskiptin sem samstarf sem báðir aðilar hafa hag af. RV er sérhæft sölu- og dreifingarfyrirtæki með hreinlætis-, hjúkrunar- og rekstrarvörur og leggur áherslu á heildarlausnir sem svara þörfum viðskiptavina og að veita ráðgjöf sem hentar aðstæðum á Íslandi. Heilbrigðissvið RV þjónar heilbrigðisstofunum og fyrirtækjum um land allt með þekktum vörumerkjum og faglegri ráðgjöf á þessu sviði. Hlutverk RV hefur frá upphafi verið að sinna þörfum stofnana og fyrirtækja fyrir almennar rekstrar- , hreinlætis- og hjúkrunarvörur. Sú áhersla sem RV leggur á hagkvæmar heildarlausnir varðandi hreinlætismál, öryggismál og hjúkrunarvörur fyrir stofnanir og einstaklinga kallar á stöðugar endurbætur í þjónustunni og lifandi ráðgjöf á því sviði. Markmið RV er að bjóða ávallt fyrsta flokks vöruúrval, persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf. Rekstrarvörur er þjónustufyrirtæki sem tekur stöðugum breytingum. RV-merkið er trygging fyrir áreiðanleika, stöðugleika og gæðum. Hjá RV starfar samhentur hópur 54 starfsmanna á Íslandi og 14 í Danmörku hjá RV Unique. Grunngildi RV eru byggð á fagmennsku, aðlögunarhæfni, virðingu, samstarfi og gæðum í daglegum störfum. Starfsmenn RV fá þjálfun og fræðslu sem gerir þá öflugri á sínu sviði. RV er reyklaus vinnustaður.
- Employees
- 11 to 50
- Headquarters
- Iceland
Leadership
The top of Rekstrarvörur's org chart, with how many people report into each leader.
Karlotta Guðlaugsdóttir
Deputy CEO
Jobs at Rekstrarvörur
No open positions right now. Explore more companies on TheJobsMap.