Sérfræðingur í fjármálum
Job description
Viltu taka þátt í að byggja upp fjármálin hjá fyrirtæki í vexti? Íþróttir skipta máli. Þær sameina fólk, halda börnum og ungmennum virkum og styrkja samfélög. Á bak við öflugt íþróttastarf standa félög, sjálfboðaliðar og þjálfarar sem leggja mikið á sig, og Abler er til staðar fyrir þau. Yfir 1.000 félög og samtök nota lausnir okkar til að halda utan um skráningar, greiðslur, skipulag og samskipti, ásamt appi fyrir iðkendur, foreldra og þjálfara.
Abler er vel þekkt á Íslandi og vörur okkar eru í mikilli daglegri notkun. Nú sækjum við af krafti á erlenda markaði ásamt því að styðja áfram við íslenskt íþróttastarf. Eitt af gildum okkar er sigurhugarfar. Við setjum markið hátt, tökum ábyrgð, lærum hratt og leitum stöðugt betri leiða til að þjóna viðskiptavinum okkar.
Lestu um DNA-ið okkar hér , og ef þú tengir við það ertu á réttum stað Með vextinum stækka fjármálin og við leitum að sterkum leikmanni í fjármálateymið. Starfið hentar vel aðila sem hefur grunn í bókhaldi og uppgjörum og vill vaxa hratt í starfi. Þú tekur að þér daglegan fjármálarekstur, uppgjör, reikningagerð og innheimtu og tekur virkan þátt í að byggja upp fjármálainnviði sem vaxa með félaginu.
Starfið heyrir undir fjármála- og rekstrarstjóra og felur í sér samstarf þvert á öll teymi. Helstu verkefni og ábyrgð Mánaðaruppgjör, útgáfa reikninga og innheimta Uppbygging stjórnendaskýrslna og framsetning fjárhagsupplýsinga til stuðnings ákvarðanatöku Samþykktarferli birgjareikninga og greiðslur Uppbygging skalanlegra ferla með gervigreind og sjálfvirkni, t.
d. við afstemmingar, innheimtu, greiningar og skýrslugerð Launaumsjón og VSK-skil í þeim löndum þar sem félagið starfar, í samstarfi við ytri ráðgjafa Undirbúningur ársuppgjörs og samskipti við endurskoðendur Samstarf við þjónustuteymi og samskipti við viðskiptavini um fjárhagsleg málefni Stuðningur við erlend dótturfélög og vöxt á nýjum mörkuðum Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærilegt Að minnsta kosti 3 ára starfsreynsla á sviði bókhalds, uppgjöra, fjármála eða reksturs Reynsla af markvissri notkun gervigreindar í starfi (t.
d. Claude, ChatGPT eða Copilot) Færni í að setja fjárhagsupplýsingar fram á skýran hátt Reynsla af umsjón með fjárhagskerfum eða góð þekking á að vinna í fjárhagskerfum Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti Kostur: grunnþekking í gagnavinnslu og reynsla af sjálfvirknivæðingu ferla Kostur: reynsla úr SaaS- eða áskriftarrekstri, af félögum í fleiri en einu landi og áhugi á íþrótta- og tómstundastarfi Fríðindi í starfi Heilsustyrkur Niðurgreiddur hádegismatur Farsími og internet Aðgangur að bestu gervigreindartólunum Sveigjanleiki í starfi Hjá okkur færðu lykilhlutverk í fjármálateymi hjá fyrirtæki sem er í vexti og tækifæri til að móta verklag og ferla frá grunni.
Þú starfar í alþjóðlegu umhverfi með samhentu teymi sem leggur áherslu á metnað, traust og eignarhald á verkefnum. Ef þú brennur fyrir íþróttum færðu líka tækifæri til að sameina fagið og áhugamálið og leggja þitt af mörkum til öflugs íþrótta- og tómstundastarfs. Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið.
Byrjað verður að vinna úr umsóknum jafn óðum og þær berast. Nánari upplýsingar veitir Arnar Þorkelsson, fjármála- og rekstrarstjóri, [email protected]. Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Description copied from Abler's careers page. Read the full posting before you apply.
More jobs at Abler
Regional Sales Manager
Abler· United KingdomRegional Sales Manager (Spain)
Abler· SpainSport Partnership Manager Germany
Abler· GermanyPart-Time Customer Success Manager (Germany)
Abler· Germany
More jobs in Reykjavik
Automation Engineer
Borealis Data Center· ReykjavíkManufacturing Engineer - Bionics
Embla Medical· Reykjavík, IcelandProduction Specialist - Electric
DTE· Reykjavík, IcelandHead Chef, Matur Og Drykkur
Alumni· Reykjavik, Reykjavík, IcelandCleanroom Cleaning and Disinfection Senior Manager
Alvotech· Reykjavik