278 open roles
Við leitum að rafvirkja eða rafeindavirkja í samsetningu á rafbúnaði og vogum
Job description
JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við samsetningu á fjölbreyttum vigtarbúnaði og rafbúnaði. Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun. Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.
Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini. Starfið felur í sér: Samsetningu fjölbreyttum vigtarbúnaði og ýmsum rafbúnaði (t.d. iðntölvur, skynjarar og skjáeiningar) Uppsetning á hugbúnaði, stillingar og prófanir ásamt frágangi fyrir útflutning Möguleiki á starfsþróun í sérhæfð verkefni eins og samsetningu á röntgenskynjurum og frumsannprófanir á löggildanlegum vogum Hæfniskröfur: Sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun (eða haldbær reynsla í faginu) Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði Góð enskukunnátta í rituðu máli Mjög góð tölvufærni og áhugi á tækniþróun Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu Góð öryggisvitund, samviskusemi og metnaður Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum) Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson, [email protected] . Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.
Description copied from JBT Marel Corporation's careers page. Read the full posting before you apply.
More jobs at JBT Marel Corporation
Director Finance, Fish
JBT Marel Corporation· DK, StovringField Service Technician (Hourly)
JBT Marel Corporation· US, Buford, GA· $73k – $83kIndustrial OEM Project Manager
JBT Marel Corporation· US, Chicago, IL· $75k – $90kSales Project Manager
JBT Marel Corporation· US, Gainesville, GASpecialist, Sales Project Management II
JBT Marel Corporation· US, Gainesville, GA
