Embla Medical logo
Embla Medical

24 open roles

Renniverkstæði - Lagerstarf

Reykjavík, IcelandFull-timePosted Oct 27, 2026

Job description

Langar þig að vera hluti af öflugu og spennandi teymi innan stoðtækjaframleiðslu Össurar? Össur leitar að öflugum og metnaðarfullum aðila í starf á lager fyrir renniverkstæði. Viðkomandi mun starfa við móttöku, meðhöndlun og afhendingu á hráefni á lager og því er nauðsynlegt að viðkomandi sé sjálfstæður í vinnubrögðum, með góða samskiptahæfni.

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi sem er til í að vera góður liðsfélagi og ganga í öll verkefni sem þörf er á hverju sinni. Hjá Össur starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni. Umsóknarfrestur til og með 9. nóvember 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð Móttaka á hráefni Samantekt og meðhöndlun á hráefni Önnur tilfallandi verkefni tengd lager Menntunar- og hæfniskröfur Reynsla af lagerstörfum er æskileg Reynsla af birgðarhaldi er kostur Lyftarapróf er kostur Almenn tölvukunnátta, þekking á BC/Navision er kostur Þjónustulund, jákvæðni og góð samskiptahæfni Skipulagshæfni þarf að vera góð Frumkvæði og hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði

Description copied from Embla Medical's careers page. Read the full posting before you apply.

More jobs at Embla Medical

See all openings at Embla Medical

More jobs in Reykjavik

See all jobs in Iceland