JBT Marel Corporation logo
JBT Marel Corporation

277 open roles

Shipping and Logistics Coordinator

IS, GardabaerFull-timePosted Oct 30, 2026

Job description

JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélaga í teymi sem sér um sendingar og flutninga varahluta. Teymið sinnir fjölbreyttum verkefnum tengt varahlutum og sér um allar hraðsendingar til viðskiptavina. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun. Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.

Um er að ræða tímabundna stöðu til 1 árs, með möguleika á framhaldi. Helstu verkefni Afgreiðsla varahlutapantana Pökkun varahluta Samskipti við innri viðskiptavini og flutningsaðila Reikningagerð og samþykkt reikninga Undirbúningur útflutningsskjala Skráning sendinga Hæfniskröfur Reynsla af útflutningi og/eða tollamálum er skilyrði Þekking og reynsla af SAP er mikill kostur Mjög góð almenn tölvukunnátta Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli Góð samskiptafærni og áhugi á teymisvinnu Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð Áhugi á stöðugum umbótum Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson, [email protected] . Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.

Description copied from JBT Marel Corporation's careers page. Read the full posting before you apply.

More jobs at JBT Marel Corporation

See all openings at JBT Marel Corporation